Halla Skalla :)

 


Gestabókin


~ Gestabókin ~

Þú ert gestur nr.
Site Meter

Sendið mér E-mail
eða addið mér á msn Halla_th@hotmail.com

Me homiez


Anna Helga
Anna Malla
Anna Rósa
Arndís
Birgir
Bogga
Dóra
Ester
Fannar
Gamla Ég
Guðbjörg
Guðný
Gyða
Helga
Helgi
Hildur
Hulda
Janus
Karen Ósk
Kristí­n
Lára
Magga
Maggi Megashine
Margrét
Mí­a
Nonni
Óbó
Ragna
Rakel Arna
Rakel Sæta
Resið
Rut
Simmi
Stebbi
Stelpurnar
Spankz
Trausti
Unnur Ósk

Förðunar síðan mín

Myndir


Myndaalbúmið mitt


Sumarbústaðarferð 2005
Sumarbústaðarferð 2005 (frh.)
Vinnuferð með Möggu og Jónasi
22. Ára afmæli Möggu, Helgu og Rakelar á PRAVDA

Babiez


Anton Blær
Edda Sóley
Katrín Tinna
Victorí­a Karen

Linkz


Msn
Leit
Barbie
Disney
Google
Batman
Spámaður
Victoria's secret
Mogginn á netinu
Reunionið í­ Garðask.

Eldra blogg


ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
júní 2006
júlí 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007
febrúar 2007
mars 2007
apríl 2007
maí 2007
júní 2007
júlí 2007
ágúst 2007
september 2007
október 2007
nóvember 2007
janúar 2008
febrúar 2008
mars 2008
apríl 2008
júní 2008
september 2008
október 2008
nóvember 2008
desember 2008

 

 
laugardagur, október 30, 2004

Ok, núna eru 2 dagar í það að mamma og allt liðið fari út til Florida :)
Síðan fer ég á föstudaginn :) Reyndar verður það ekki gaman því að ég verð alein í fluginu sem að er EKKI gaman :( Allavegana ekki í svona langann tíma :(
Svo er líka mikið bókað, þannig að það eru allar líkur á því að ég þurfi að sitja inní koppiti framm OG til baka :( *sniff*sniff* Það er það leiðinlegasta sem að ég veit um!!!!

En nóg um það....
Ég er að fara að setja bílinn minn í viðgerð :) LOKSINS!!! Ég er ekki að höndla það að keyra um á beygluðum bíl :S Það er ekki minn stíll :S
Svo ætla ég að selja hann þegar að hann er orðinn beinn og fínn :)

Síminn minn var loksins að koma úr viðgerð!!
Ég fékk nýjann síma :) Reyndar er þetta ekki "nýr" sími...því að þetta er sama tegund og ég var með...sama front og sama batterí...en nýr sími! Skiljiði mig?
Núna get ég allavegana fengið pólý tóna í hann :) Það gerir mig svooo hamingjusama :) Sjáiði hvað það er auðvelt að gleðja mig :)

Lalalala....

Ok, hér er erfiðasta gáta í heimi:
Það voru tvær appelsínur sem duttu af bíl og annar bíll keyrði yfir aðra appelsínuna. Hvað gerði þá hin appelsínan?

???? Vitiði svarið????


Halla caught a star @ 21:15



 


fimmtudagur, október 28, 2004

.....sagði gæinn þegar að það sprakk í honum maginn......

Þá er ég loksins komin með símann minn aftur!!
Hann er búinn að vera í viðgerð heillengi :(
Eeeeennn...góðu fréttirnar eru þær að ég fékk nýjann síma :) Reyndar er þetta sama tegund og ég var með, en nýr sími ;)
Það þýðir að hann á að virka lengur enn sá gamli :) Eða mér finnst það allavegana lógískt :)

Hurriði, ég var sko illa svikin í gær!!
Ég dröslaði Stebba með mér "út fyrir endimörk alheimsins..." (Bósi Ljósár) í gær í þeim tilgangi að horfa á tunglmyrkva!
Við vorum búin að sjá þetta auglýst á netinu og þetta átti að vera rétt eftir 00:00 í gærkvöldi....
Við biðum og biðum...og biðum og biðum....svo biðum við pínu meira....en enginn tunglmyrkvi kom!!!
Reyndar byrjaði tunglið að hverfa smátt og smátt....en það var BARA útaf því að skýin voru farin að þekja það.
Svo þegar að ég kom heim-ÞÁ var tunglið að byrja að hverfa!!
Gat það ekki drattast til að hverfa fyrr????
En ég fékk allavegana skemmtilega jeppaferð (sem ég kýs að kalla ævintýra safaríferð) í staðin fyrir tunglmyrkvann (eða þið vitið...tunglbirtuna!!!)

Og getiði hvað....það er bara vika þangað til að ég fer til Florida :)
Það kom ein stelpa hingað í vinnuna í dag sem að hafði verið á Florida og var bara að koma heim í gær....hún var að vinna allan tímann þannig að hún náði ekkert að liggja í sólbaði en SAMT var hún brún!!!
Hún sagði að maður ætti eftir að ná þokkalegum lit ef að maður mundi liggja í sólbaði....og guess what?? Ég ætla sko að gera það!!
Ég ætla að koma heim eins og litli svarti sambó :)

Ég og Brynja erum að fara í kvöld á smáfuglakvöld með einhverjum krökkum af gæludýraspjallinu....
Ég á engann fugl....en ég er svo góð vinkona að ég ætla samt að mæta með henni á þetta :)

Jæja...það er einhver að...jiiiii...hvað er hann að gera!!!! HÆTTU ÞESSU!!!!!!!
NOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO.....................


Halla caught a star @ 17:30



 


fimmtudagur, október 21, 2004

Góðann og blessaðann :)
Hallan is back in town-as good as new :p

Ég kom eldsnemma í morgun frá forboðna landinu-Ameríku....!
Mín lenti klukkan 6:20 og fór svo bara beint að vinna klukkan 11¨.
ég er u.þ.b. að leka niður úr þreytu!!!

Allavegana....Við Helga fórum semsagt til Minneapolis síðasta miðvikudag.
Ég var í vinnunni til hádegis og fór svo beint útá völl.
Spenningurinn var gríðarlegur, sérstaklega þar sem að Helga hefur ekki farið til USA síðan hún var kornabarn!

Ferðin gekk vel (fyrir utan hvað það var hryllilega leiðinlegt að húka í sex og hálfann tíma í vélinni...og við ætluðum sko að fyrirbyggja að það kæmi fyrir aftur...en ég kem að því seinna!)

Þegar að við komum til MN fengum við far með áhöfninni á hótelið.
Við vorum á Hyatt Regency sem að er hið fínasta hótel.
Við fengum stórt og gott herbergi með 2 queen size rúmum og alles :)

Ég nenni ekki að segja frá hverjum einasta degi í smáatriðum...því að við vorum basicly bara að versla :)
Við fórum 3 daga í Mall of America (ein hæð á hverjum degi--þriggja hæða moll) og svo vorum við hina dagana bara að rölta um í bænum.
Okkur fannst best að vera í mollinu því að þar eru allar búðirnar saman komnar á einum stað og það þurfti ekkert að leita að búðum sem að voru síðan ýkt hallærislegar eða bara með karmanns nærbuxum or som´n....
Við fundum okkur alveg heilann helling af fötum og líka föt á systkini okkar og fleiri.--Við erum svo góðar :)

Á laugardeginum fórum við í heimsókn til Rannveigar og þeirra.
Þau eru flutt í nýtt hús og það er ekkert smá geggjað!
Það er á 3 hæðum, en neðsta hæðin er bara svona "leik-herbergi"= billiard, foosball, og allskonar :)
Við borðuðum mjög góðann mat með þeim og horfðum svo á "My big fat greek wedding".
Síðan skutlaði Rannveig okkur heim og það var ekkert smá erfitt að kveðja þau eftir svona stutta heimsókn :( *sniff*sniff*

Á sunnudeginum leiddist okkur Helgu all svakalega, þannig að við skelltum okkur niður á hótel barinn og duttum suddalega í það *roðn*
Við píndum okkur til að drekka einn viðurstyggilegann bjór (með epla bragði for crying out loud....) og vorum næstum búnar að æla út um allt :S
Þegar að við vorum búnar að gera okkur að nettum fíflum þarna á hótelinu, þá skruppum við út á næsta pubb. Svo skemmtilega vildi til að þetta var "Irish pub" og skemmtum við okkur konunglega þar :)
Það komu einhverjir gaurar og buðu okkur uppá drykku og auðvita þáðum við það ;)
Eftir smá tíma spurði einn mig afhverju ég væri á "Irish pub" og ég svaraði með öfga kúl írskum hreimi "cuz I´m from Ireland"....þá missti gaurinn kjálkann ca niður á gólf og spurði hvort að ég væri leikkona. Ég greip þetta stóra tækifæri og sagðist vera vel þekkt leikkona á Íslandi :) Híhíhíhíh :p
Hann sagði að ég væri mjög fyndin og spurði hvort að ég væri að leika í SNL (Saturday night live) sem að eru mínir uppáhalds amrísku grínþættir :)
Ég varð því miður að segja nei við því....en hann sagði að ef að hann væri manegerinn minn, þá mundi hann sko redda mér hlutverki þar-því að ég væri drullu fyndin og ýkt góð leikkona (ég tek það framm að ég var full og var að haga mér eins og algjört fífl-og já....það...)!!!
Hahahahaha....svo sagði einn að ég væri lík Britney Spears.....Bwahahahaha hafiði heyrt annann svona góðann!?!?!?!?!?!?!

Anyway....svo ætla ég ekki að ræða það við ykkur hvað við keyptum mikið!!!
T.d. einn daginn fórum við í Target og komum heim með 18 poka!!!
Bjöllugaurinn gerði líka ekkert smá mikið grín af okkur....
Kannski líka útaf því að við komum ekki inn á hótelið án þess að hafa nokkra poka með okkur *roðn*

En ég á inni hjá þér STÓRANN greiða Stebbi----þú veist ekki hvað það var erfitt fyrir okkur að leita að þessum hel*** bangsa...sem að við fundum by the way ekki!
Síðan fann ég einn (ekki cartman samt....) og þá gat ég ekki pakkað honum niður í töskuna, þannig að ég þurfti að dröslast með hann allann tímann með mér í handfarangur.... uuurrr......

Já ok....svo núna í gær (eða þið vitið--áðan á mínum tíma) þá fórum ég og Helga í fótsnyrtingu :) Það var ekkert smáhá þægilegt!!
Núna erum við sko með súper mjúkar og sætar tær :p

En á vellinum á leiðinni til baka fórum við í bókabúð og keyptum okkur (án gríns) um 10 magazín til að lesa í vélinni (ég var búin að segja ykkur hvað okkur leiddist í vélinni til MN....).
En auðvita lásum við ekki einusinni hálft blað...!!!!
Þannig að núna sit ég uppi með heilann stafla af slúðurblöðum.....ekki það að mér þyki það eitthvað leiðinlegt...hehehehe :p

En svo kom ég í morgun....og þá er ég komin hring....er það ekki annars?
Æ ég er svo þreytt að ég veit ekkert hvað ég er að bulla :S

Stop talking to me!!!!


Halla caught a star @ 15:48



 


miðvikudagur, október 13, 2004

Jæja...ég er búin að vinna eftir 25 min. og ég er um það bil að farast úr spenningi :)
Ég held að ég sé búin að hringja að minnsta kosti 13 sinnum í Helgu í morgun og fara 7 sinnum á klósettið!!!

Hólí mólí :)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ætlaði bara rétt að segja "Skemmtið ykkur vel elsku rúsínurnar mínar" :)

Heyrumst næsta fimmtudag :)



Halla caught a star @ 11:05



 


þriðjudagur, október 12, 2004

Spenningurinn alveg farinn að segja til sín :)
Ég fer að vinna í fyrramálið kl: 7¨ til 11:30 og þá fer ég beint heim að ná í töskurnar (2 tómar) svo að sækja Helgu og svo beint útá völl :D
Jibbííiííí ég er svooooo spennt :D

Við leggjum af stað kl: 16:35 og þá verðið þið sko að hafa hugann hjá mér :)
Ég verð með símann með mér...þannig að ykkur er velkomið að senda mér sms or som´n til að stytta mér stundir....eða þið vitið---láta mig vita að þið munið eftir mér :)
Bara að muna að setja +354 á undan númerinu.... svo kemur númerið :)

Jæja...ætla að halda áfram að pakka (er sko með 2 tómar töskur og 1 tannbursta......)...ok-ég er búin að pakka..... That was easy :)

En ég skrifa meira á morgun...hef það sterkt á tilfinningunni að ég eigi eftir að vera það spennt að ég á varla eftir að vita í hvorn fótinn ég á að stíga.....

P.s. Greyið Trausti var aftur að brjóta á sér hendina :(
Hann var eitthvað að leika sér á crossaranum og það datt og braut hendina :(
Það eru ca. tvær vikur síðann hann kom úr hinu gipsinu :(
Hann fær alla mína samúð :)
Ég elska þig Trausti :)
*koss*koss*


Halla caught a star @ 20:55



 


föstudagur, október 08, 2004

Ok....boðar það gott ef að það er verið að spegúlera í því hvort að maður sé úr plasti eða ekki?!?!?!?!

Þetta var á Batman.is undir "vinsælast vikunnar"....Fyrirsögnin var "Er hann úr plasti??"
Hér er svo myndin:
Baby-doll

Sturla minn....what´s happening????

You know I love you anyway :)

*kiss*kiss*


Halla caught a star @ 21:39



 

Æi, ég er þreytt :(
Ég er búin að vera á 7 vakt alla vikuna og ég er farin að þrá það að sofa út :)
Enda ætla ég sko að gera það big time á morgun!!!
Svo fer ég að vinna á sunnudaginn, mánudaginn, þriðjudaginn og svo fer ég út á miðvikudaginn :) :) :) :) :) Ég er svo spennt að ég er veit varla hvað ég heiti lengur.....veit það annars einhver?

Ég er farin að sjá allt dótið, sem að ég ætla að kaupa mér, í hyllingum!!!
Getiði ímyndað ykkur alla skartgripina, fötin, skónna, töskurnar, make-upið og allt dótið bara sem að ég á eftir að koma með heim :) Ég eftir að fara svo auðveldlega með að eyða 200 þúsund kallinum :p
Efast meira að segja að hann sé nóg :S En hann verður bara að duga!!!
Ég og Helga ætluðum að vera cool og fara kannski að skoða einhver söfn eða allavegana "The big cherry on the spoon".....en við ákváðum að sleppa því og versla bara :p Við höfum jú bara 1 viku!!
Svo um helgina ætlum við að fara á einhverja skemmtistaði og dansa dirrty :p Hafiði séð ameríkana dansa á stöðunum þarna úti??? Það er eins og að vera kominn í suddalega orgíu útá miðju dansgólfi og enginn virðist kippa sér upp við það!!!
En það er bara cool og við ætlum að missa okkur þarna og gera okkur að svo miklum fíflum að rauðhærður járnsmiður mundi dauðskammast sín......

Áðan hitti ég Möggu og Helgu og vinkonu þeirra á kaffihúsi. Við ætluðum að ræða um danmörk og það allt....en þegar að við vorum allar komnar með leið á því að hanga þarna föttuðum við að við höfðum bara talað um stráka og föt......enga danmerkurferð :S Stupit girls.....

Jæja....ég verð að fara að taka lasagniað útúr ofninum.....mamma treysti mér fyrir því...þannig að það er eins gott að ég klúðri því ekki.....

Adíós


Halla caught a star @ 18:12



 


fimmtudagur, október 07, 2004

when I´m around you baby.....

Góðann og blessaðann :)

Í dag fór ég með Brynju að kaupa afmælisgjöf handa Tobba--og þá rann það upp fyrir mér hvað mig vantar einhvern svona til að spilla út í eitt....einhvern til að kaupa helling af dóti fyrir og dekra niðrí tær!!!
En megi hún bara njóta þess í friði...huh....!!!! Hehehehe nei nei :p Enga öfund Halla skalla :)

En ég og Magga ætlum að reyna að hittast á morgun til að ræða skóla málin okkar :)
Við ætlum sumsé að reyna að skella okkur saman út næsta haust (það er of stutt í áramótin) í lýðháskóla :)
Helga, og hennar nýji kærasti Stebbi, ætla líka að fara út...þannig að þetta verður súper fun :)
Magga að læra sálfræði, Helga í arkitekt og mín í leiklist :) Þ.e.a.s ef allt gengur upp ;)
Er þetta ekki flott lið :p

Ok...ég gæti ekki verið meiri sauður!!!
Ég var að skreppa út í búð fyrir mömmu áðan....þegar að ég kem út í búð fatta ég mér til mikillar skelfingar að ég hafði GLEYMT veskinu heima!!! How stupit can I be????
Ok--ekki samt svara þessu því að ég held að kerfið sé ekki nógu sterkt til að fá svona mörg svör um það *roðn*


Hey!!! Á ég að segja ykur :)
Ég var að komast að því að ég á inni fullt af sumarfríi sem að ég má ekki fá útborgað, og þá má ég bara fá fullt af fríi :)
ég ætla sko að nýta það með því að vera allan tímann með mömmu og þeim á Florida :)
Í staðin fyrir að vera í 1 helgi, þá verð ég í 2 frikkin VIKUR :) Jibbíííí :)
Semsagt...ég kem heim frá Mn, bíð í 2 vikur og fer svo aftur og þá til Florida (sem er b.t.w. annað skiptið þá á þessu ári)

En nóg af monti......

Ég ætla að fara að skella mér uppí rúm og horfa á Friends :)

Túdílú my niggas :)


Halla caught a star @ 19:01



 


þriðjudagur, október 05, 2004

Jæja ok- ég er komin heim úr vinnunni og STRAX byrjuð að blogga aftur :)

En eins og ég var að segja, þá bjargaði Hildur deginum og við skulum gefa henni eitt gott klapp *klapp*
Svo kemur hérna linkur inná slóðina sem að þið getið fengið msnið á ;)

Hér er Msnið!

En snúum okkur að mikilvægari hlutum :)
Vitiði hvað ég fann á netinu!?!?!?!?!
Mjög falleg orð í minn garð ;)
Maður er bara snortinn og manni langar barasta til að leggjast niður og skæla!

En núna er ég aðalega bara að skrifa afþví að Halla var að biðja mig um a gera
það og jújú ég geri allt fyrir hana því að hún er svo yndisleg. Betri og
hjartahlýrri mannvera held ég að finnist ekki hér á þessari jörð.


Takk Simmi ;)


En sko stelpur....ég var að pæla...hvað segiði um það að skella okkur uppí einhvern sumarbústað þegar að ég og Helga erum komnar heim frá Mn??
Þó að það sé ekki nema bara uppá Krumshóla :p
Það væri klikkað stuð :)

Allir sem vilja segja ÉG :)


Halla caught a star @ 16:58



 

Yeah...in your dreems....ég er sko EKKI í skóla!!! Laaaaangt því frá!!
En ég er samt mikið búin að vera að spá í að skella mér til Danmerkur í lýðháskóla :)
Helga og Magga ætla að fara út, og minni langar klikkað með :)
Djöfull væri það gaman :)

En á ég að segja ykkur.....ég er komin með msn í vinnunni :)
ég vil persónulega þakka Hildi fyrir að koma með þetta nýja ljós í lífið mitt :p
You saved my life :p
Og reyndar okkar allra hérna á resinu :)
Thank you honey :)

Ég ætla að skrifa meira á eftir...er búin að vinna núna, þannig að ég held áfram þegar að ég kem heim :)


Halla caught a star @ 14:59



 


 

Dagatalið


Afmælisdagar:

1. Anna K.
6. Gummi
10. Bjarki
10. Erla
18. Ester amma
20. ÉG!!!!!!!



V.I.P


Louis Vuitton
Armani
Dior
Dolce & Gabbana
Gucci
Ralph Lauren
Prada
Victoria's secret
Vogue
Cosmopolitan
Elle