mánudagur, apríl 11, 2005
Aaaaa...góðan daginn :) Entschuldigen hvað ég er ekki búin að skrifa leeengi :(
Það er sko margt búið að gerast hjá mér síðan...ööö síðan fyrir hálfri öld!!!!! T.d eru mínar ástkæru vinkonur Magga og Hulda búnar að eiga ammli, einni minn kæri vinur Simmi Krummi (hehehe) og svo ég nefni það nú líka...Ragnar litli frændi er kominn með bílpróf!!!!!!!!!!!!! Þá eru bara TVÖ FRIGGIN ÁR í að LITLI-YNGSTI-MÚSSÍ bróðir minn fái bílpróf :'( Hvar endar þessi hringavitleysa???
En nóg um afmæli....Let´s talk about DJAMM!!! Mín er bara orðin alki og drekk ég nú á hverjum einasta degi!!! Neeehhhhh....ekki alveg, en ég er byrjuð að drekka mikið, sem er BARA gaman :)
Núna síðasta laugardag héldu þær Magga, Helga Ó. og Rakel afmælið sitt saman á Pravda :) ég var reyndar að vinna til 17°° á laugardeginum en flýtti mér heim um leiði og ég var búin. Þá komu Kristín og Anna H. til mín og ég skellti andliti framan í Stínu og gerði hárið á Önnu ógleymanlega fínt :) ---Ég ætti að taka við greiðslum fyrir þessu!!! Þær voru líka algjörar pæjur :) *well done Halla*
Svo fórum við heim til Möggu þegar við vorum orðnar fínar og bókstaflega DUTTUM í bolluna!!!! Við drukkum allar hugsanlegar tegundir af áfengi...bollu-bjór-skot-eitthvað með kókos ofl. :) Ein af okkur varð líka svo dauða drukkin að hún var send heim með skottið á milli lappanna um klukkan 11 eftir að hún var búin að skreyta Pravda á mjög "listrænann" hátt.........Let´s not go there girlfriend...aha...aha.....!!
En ég varð bara eftir með hinum gellunum sem að drukku aðeins minna :) Ég og Helga vorum að MEIKA það í að fá okkur frítt áfengi :) Hehehehe...ég ætla ekki að gefa þessa snilldar-uppfinningu mín upp hérna á netinu ;) Svo þegar að Helga heltist úr lestinni, fórum ég, Anna H., Rakel og Arndís á Victor og dönsuðum eins og geðsjúklingar!! Stelpur...hvaða gaur var þetta sem að var að dansa með okkur?? Eða réttara sagt...hvaða GAURAR!!!???? Anna náði samt að passa mig mjööög vel frá öllum strákunum...kanski OF vel Anna mín :( Hehehehehe, en núna veit ég allavegana hverja ég tek með mér í miðnæturs-göngur í Öskjuhlíðinni :) Miss Power Rangers Anna ;) Danke bitte :)
Svo lá leiðin bara heim :) Þegar ég kom heim voru mamma og pabbi að detta inn af árshátíðinni sinni. ég veit ekki afhverju, en ég og mamma fórum að blása í áfengismælinn okkar---það er eiithvað sem að ég ætla EKKI að gera aftur með MÖMMU sonna nýkomin af djemmen!!! Niðurstaðan var semsagt þannig að ég var með 0.12, en má víst bara vera með 0.04 :S Hehehehe...en mamma sagði ekki neitt því að mælirinn gat ekki einusinni sýnt hvað hún var orðin full!!! Það kom bara -HOT-HOT-HOT---WARNING-WARNING-WARNING!!!!!!!!! Hehehehe...mamma gamla :)
Eeeennn....síðan í gær var ég bara í bleiku súperman náttfötunum mínum uppí rúmi allan dagin og glápti á DVD :) *vantaði bara kúru-partner* :(
Núna er ég komin í vinnuna, og ég er að segja ykkur að ég er að verða veik :( Hvað er í gangehhh??? (smá Jóa-stæll hérna :) )
En hafið þið góðan dag, og ég heyri í ykkur á næstu aldamótum!!!!!!!!!! Over and out....
Halla caught a star @ 11:53

|
|