miðvikudagur, nóvember 30, 2005
Gleðilegan Desember :)
Loksins má ég skreyta og hlusta á jólalög án þess að fá samvisku bit :) Ég er líka mesta jólastelpan í öllum geiminum :)
Þótt ótrúlega virðist vera, þá er ég ekki búin að gera jólakortin í ár....hummm....en ég er búin að kaupa allar jólagjafir :) ----var búin að því í sept *roðn* Ég er bara búin að vera svooooooo busy að ég hef ekkert getað gert jólakort :( But don´t worry, þið fáið þau :)
Skólinn gengur bara mjög vel. Ég er að fara í næst síðasta prófið mitt á eftir, og svo er síðasta prófið á þriðjudaginn :) Öss....tíminn er búinn að vera svoooo fljótur að líða að það er ekki normalt :S En hann á það víst til að líða svona hratt á meðan það er gaman hjá manni...... ég sé sko ekki eftir þessum skóla :)
Annars er ég búin að segja upp vinnunni minni hérna hjá Flugfélaginu :( Það er ekkert smá skrítin tilfinning :S Ástæðan fyrir því er nefninlega að ég er að fara í skóla eftir áramót :) Ég fékk inngöngu í FÁ (Ármúla).... Það verður spennandi að sjá hvort að ég geti þetta......
En jæja, ég verð að halda áfram að gera vinnubókina mína....ég er að stressa mig í keng á henni!!! Ég á að skila henni eftir akkúrat viku og ég er ekki búin með mikið :(
Julehilsen
*14 dagar í Helgu og Stebba* *15 dagar í útskrift* *23 dagar til jóla*
Halla caught a star @ 15:03
föstudagur, nóvember 18, 2005
KISS
Klukk smukk!!!!!!
#1-- Ég ÞOLI ekki þegar fólk reynir að módmæla mér þegar að ég VEIT að ég hef rétt fyrir mér!!!! Ég HATA það!!!
#2-- Ég þoli ekki þegar strákar ofnota væmin orð við mig.... alltí lagi í hófi sko ;)
#3-- Ég verð ekki hrædd á hryllingsmyndum.....Það er EKKERT sem að hræðir mig :) Muahahahahahaha
#4-- Ég kem aldrei við handriðið í rúllustigum.....eða, ég reyni bara alltaf að komast hjá því að koma við hluti sem að eru in public places :S
#5-- Ég er alltaf með gloss....mér finnst þurrar og skrælnaðar varir algjör vibbi!
Á marr ekki svo að vera nasty og klukka einhverja?? Ég ætla að klukka.... Kristínu, Helga, Hibubu, Nonna og Brynju :) Muahahahahahah!!!!!!!!!!!!!!!!! ;)
Hehehe og ein frá því að við vorum með 20's förðun í skólanum....
Er hægt að finna mynd sem að er ólíkari mér???
*10 dagar í jólaskraut!!*
Halla caught a star @ 15:42
mánudagur, nóvember 14, 2005
Hvað segið þið um að ég bloggi smá :) Eru ekki allir í stuði fyrir það?
Ég er í nettu panik-kasti hérna!!! Ég er að fara í skólann í kvöld og við fáum einkunnina úr svart/hvíta prófinu.... mér gekk ekki það vel, þannig að stressið er að fara með mig :( But we´ll see....
Á föstudagskvöldinu fór ég með Brynju og nokkrum öðrum úr vinnunni á "Nínu og Geira" sýninguna á Broadway. Sýningin er GEGGJUÐ og ef að einhver vill fara á hana, þá kem ég með!!!!!!!!! :)
Á laugardeginum fórum við nokkrar stelpur úr Rifka í Kringluna að farða fyrir tískusýningu á vegum Eskimo módel. Það var mjög gaman, soldið stressandi...en gaman. Við vorum 5 eða 6 með 80 módel!!! Svo kíktum við á koffíhás á eftir.
Laug. kvöldið var bara tekið með rólegheitum heima, að horfa á House of wax..... Sérstakar þakkir til Ragnars og Trausta sem að pössuðu mig eins og herforingjar :D *kiss*kiss*
Sunnudagurinn var bara afslöppun út í eitt :)
En elsku krúttin mín....ég er með mjöööög slæmar fréttir :( Maggan MÍN er að fara að flytja til Amríku!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Hvað er í gangi??? Helga er nýflutt til Danmerkur og þá tekur Magga uppá því að fara líka!!!! Ég er sko EKKI sátt!!!! Hún ætlar að flytja til Florida með Fannari og þau ætla að fara í skóla þar. Hún ætlar að skella sér í förðun á Miami....HALLÓ...er þetta ekki draumurinn MINN??? Hehehehe Magga mín, hver veit nema að ég reddi mér kalli einn tveir og bingó og skelli mér með ykkur út....þá getum við farið að læra förðunina SAMAN :D Jibbíííí.... úúúúú....farið svo í alla garðana og skemmt okkur geggjað vel :) Spennóóó :p
En hvað segið þið um að hafa einn hitting fyrir jól? Haft svona "gala" þema :) Allar í síðkjólum og herrarnir í mörgæsa outfitti :) Getum haft það Litlu-jólin okkar, svona eins og við vorum með í fyrra....svo að við séum ekki að gefa 20 jólagjafir :)
~Over and out~
P.s var að gera síðu fyrir förðunina.... Hún er/verður ekki full kláruð fyrr en ég útskrifast :)
http://www.blogcentral.is/faceart
Halla caught a star @ 12:53
miðvikudagur, nóvember 02, 2005
DEMET!!! Afhverju þarf ég að lofa einhverju uppí ermarnar á mér sem að ég get ekki staðið við.....eða öllu heldur "nenni ekki" að standa við?? Ég bara nenni ekki að blogga.... Tjahh....vist að ég er byrjuð á því get ég svosum alveg haldið áfram...ehaggi???
Skólinn gengur mjög vel :) Er búin að fá fleiri einkunnir, fékk t.d. 9.2 fyrir smoky förðun :) Enda var ekki erfitt að gera hana Helgu mína sæta :) Held að hún eigi stórann part í þessu hjá mér :) Var í gær að gera DRAG förðun.....össs, ekkert smá erfið!! En skemmtileg :) Verð með sér módel á morgun og MAN hvað það á eftir að verða gaman :D Ætla að setja demanta-bindið mitt á hann og gera hann truflaðslega flottann :D
Síðustu helgi fór ég í náttfatapartý með stelpunum uppí vinnu. Það var ekkert smá skemmtó....við vorum þarna á gegnsæjum silkináttkjólum, í koddaslag og sumar berar að ofan.....nei bíddu....dem, ég var búin að gleyma að það eru engir strákar að lesa bloggið mitt!!!!!! ....jæja, allavegana e-ð smá fyrir Stínuna mína :p heheheh
Við vorum bara í partýinu á okkar bómullar náttfötum (mín bleik með súperman merkinu....), fórum í fótabað og horfðum á Idolið, mjög skemmtó :) Síðan á laugardeginum fór ég til Arndísar og málaði hana og Rakel fyrir árshátíð....þær voru ekkert smá flottar!! :)
Næstu helgi er ég að fara að farða fyrir einhverja tískusýningu og ætla svo að hitta stelpurnar úr Rifka skólanum eftirá----djammeeeeeen :) *Allir að hitta mig niðrí bæ :D*
Jæja, ætla að halda áfram að öööööö "vinna"....það er enginn að hringja inn akkúrat núna :S
Luva ya guys :)
Hilsen....
Halla caught a star @ 17:01
|
|