fimmtudagur, júlí 20, 2006
SJÖ VIKUR Í ÁSTRALÍU!!!!!!!!! JIBBÍÍÍÍ :D
Það er tvennt sem ég ætla ekki að tala um: veður og stjórnmál...!!!
Ok, byrjum á veðrinu! Hvað er málið með það? Eini dagurinn sem að sólin svo mikið sem SÉST hérna í Reykjavík, er ég send á HORNAFJÖRÐ!!!! Reyndar var það mjööög gaman :) Ég, Anna María og Hildur fórum saman í dagsferðina á Höfn. Við mættum útá völl snemma í gærmorgun í þessu svaka góða veðri! (síðast þegar við ætluðum að reyna að fara í þessa ferð var ófært) Við vorum úber ánægðar með að fá svona GEGGJAÐ veður í ferðinni :) Við fórum í loftið og það var sko heldur betur heiðskírt! Horfði útum gluggann allan tímann.... eða alveg frá því skýin byrjuðu að myndast og þangað til að ég sá ekki shitt fyrir skýunum!!! Þegar við lentum var úrhellis rigning og brjálað rok (núna er gott að sjá fyrir sér myndina Twister)! En þrátt fyrir rigningu og rok (ekta íslenskt veður) fórum við uppá Vatnajökul og keyrðum um eins og vitleysingar á snjósleðum :) Eftir sleðaferðina fengum við ókeypis bjór sem vakti mikla lukku :) Þegar við komum niður af Vatnajökli fórum við í Jökulsárlón og sáum alla frægu klakana sem að Angelina Jolie, Jamses Bond og Batman stóðu á!! Ég sver, við sáum AKKÚRAT þá klaka.... Þegar við komum aftur í bæinn var sól og SAUTJÁN stiga hiti!!! Eigum við að ræða það! Nei, hélt ekki!!!
Eftir þessa mögnuðu ferð fór þreytan aðeins að segja til sín og mín rotaðist kl 22 *rooooðn*
Restin af myndunum er hér: http://www.halla.shutterfly.com
P.S. Sól sól skín á mig Ský ský burt með þig Gott er í sólinni að gleðja sig Sól sól skín á mig
Halla caught a star @ 11:29
föstudagur, júlí 07, 2006
Til hamingju með afmælið Hexy :) Skvísu-voffin er orðinn 4 ára!!! Trúum við því??? Það eru fjögur ÁR síðan litla músin mín fæddist! Hvar væri ég án hennar!?!?! *hóst*drama*hóst* Nokkrar myndir af voffalingnum fylgja :)
Annars er það bara chill og HM um helgina... en næstu helgi verður sko tekið á djamminu á SNÆFELLSNESI!!! Allir þangað!! hibba húlle húlle húlle hibba húlle húlle húlle hibba húlle húlle húlle hæ....
Halla caught a star @ 22:50
mánudagur, júlí 03, 2006
Mmmmmmáánudagur! (árið er b.t.w. HÁLFNAÐ!!!!!!!!)
Þessi brjálaða törn mín er aaaalveg að verða búin :D Skólinn er búinn og HM klárast núna næstu helgi :) Þá er ég ekki að gera neitt annað en að vinna hjá Fluffélaginu og SLAPPA AF :D (og reyndar vinna um helgar...) Skólinn gekk vel, ég fékk 6 í þýsku sem að mér finnst MJÖG gott! Ég hef ekki verið í tísku..meina þýsku... í mööörg ár! Þannig að núna er ég stúdent í þýsku :D JEIIJ!! En það sem að mér finnst brilleant er að ég fékk friggin NÍU í lokaeinkun í sálfræði!!!! NÍU!!!!! :D *If your happy and you know it clap your hands --klapp-klapp*
Ég verð að viðurkenna doldið fyrir ykkur! Ef að HM væri lengur en til næstu helgi, þá yrði ég sennilega fótboltanörd! Ég hef nebbla lúmskt gaman að því núna! Reyndar datt "mitt" lið út um daginn þannig ég hef þannig séð enga "ástæðu" til að horfa á fótboltann... (nú er allt ómögulegt!!) Hér eru nokkur dæmi um það afhverju ég var í raun og veru að horfa á boltann:
Ok...bara nokkur dæmi *sleeef* Þarna sjáið þið stelpur, það er sko í FÍNU lagi að horfa á fótbolta :) -------------------------------------------------- Svo vil ég bara minni ykkur á það, EF þið skylduð vera búin að gleyma því! Að ég er að fara til Ástralíu í haust :D
Mikil spenna í gangi hérna megin við tölvuna!
-------------------------------------------------- Og smá "Harry og Heimir": Gaur: þið hafið þegar séð of mikið.. ég hætti ekki á að sleppa ykkur héðan á lífi Heimir: nei viltu ekki bara sleppa okkur héðan á vélsleða eða eitthverju svoleiðis?
Halla caught a star @ 10:27
|
|