miðvikudagur, nóvember 22, 2006
Hæ litlu dúllurnar mína :) Hvad siger du godt?
Ég er búin að komast að því að blogger.com vill ekki pósta blogg í tölvunni minni heima!!! Þannig að ég verð að nota eyðurnar mínar til að blogga...og eins og þið sjáið þá eyði ég eyðunum (hehehe) yfirleitt ekki á netinu.... sowy!
En hey, ég var að fá mér Myspace síðu, endilega allir að adda mér!!! Sofar á ég bara vin sem heitir TOM og jólasveininn... hehehe :) síðan er http://www.myspace.com/hallaskalla
Ef þið hafið ekki tekið eftir snjónum úti, þá ætla ég hérmeð að informa ykkur og láta ykkur vita að það er allt á KAFI í snjó!!!! Það er svo mikill snjór að bíllinn minn HVARF um daginn!!! Ég reyndar fann hann því það stóð svona drullu-þak uppúr snjónum sem skar sig úr öllu þessu hvíta..... Og ekki nóg með það að hann sé að hverfa í tíma og ótíma, þá neitar hann að fara í gang!! Fer bara í gang þegar honum hentar! Hann fer t.d. ALDREI í gang á skólalóðinni, sem er klárlega BARA til að gera mig vandræðilega! og hann fer aldrei í gang þegar ég er sein, sem er líka klárlega bara til að ég verði sein!!! Ég er að spá í að skipta litlu snjókúlunni út fyrir einhvern nýjann hönk sem er ekki með kontról yfir mér!!!!! Svoldið glatað að bíllinn ráði ferðum....
En eigum við að ræða það að það eru bara 32 dagar í JÓLIN!?!?!?!?!?! Damn hvað ég hlakka til að setja upp allt jólaskrautið og misnota jólatónlistina :D Og ég tala nú ekki um að setja upp jólasíðuna!!! Jólin koma...jólin koma....
Svo er eitt annað sem við þurfum að ræða! Ég fer bara í TVÖ lokapróf!!! Thats it-- TVÖ!!! Ég er ógó ánægð með það! Síðara prófið er 8. des og þá er mín bara komin í jólafrí!!! Og ég ætla að láta ykkur vita af því að ég er varla neitt að vinna um jólin, þannig að ég get leikt við ykkur öll ALLAN DAGINN :D :D :D FUUUN!!!
En já...tíminn er að fara að byrja, heyri í ykkur :) Bleeeeee
Halla caught a star @ 15:04
laugardagur, nóvember 04, 2006
Vá, afhverju þarf maður að lofa einhverju sem maður getur varla staðið við? Já, maður spyr sig! En hér er allavegana blogg sem ég "lofaði" í síðasta bloggi....
Þegar maður er í skóla, þá á maður sér ekkert líf- það er staðreynd!! Ekki eitthvað sem mér persónulega finnst, heldur eitthvað sem að er í alvuru skráð í lög! Ég sá það, ég sver!! Og svo er svo fyndið (ekki svona "haha" fyndið, heldur svona "hahaha -held á byssu og BANG" fyndið...) að kennararnir hafa 4 MÁNUÐI til að láta okkur gera verkefni, ritgerðir og próf, en þeir láta mann gera þetta allt á EINNI VIKU!!! Er þetta einhver samsæriskenning sem fór framhjá mér eða?? Ein vika af fjórum mánuðum!! Hvort ætli þeir séu með þessa viku skráða hjá sér sem "látum alla nemendur þjást" viku eða eru þeir virkilega svona vitlausir?? Ég vil kenna þessum lögum um....
En ég get andað léttar, því talandi um "lög" þá fæ ég að syngja jólalög eftir minna en MÁNUÐ!!! :D Jibbííí Ég hlakka svo til jólanna að ég er að deyja-- en ég ætla samt ekki að gera ykkur þann greiða að gera það ;) To bad for you!! muahahaha
* 27 dagar í 1. des * 43 dagar í Möggu (OMG hvað ég hlakka til) * 53 dagar í JÓLIN!!!!
1. des set ég upp jóla-síðuna mína :D hlakka geggjað til skomm :)
En já, nenni ekki að skrifa meira í bili, þarf líka að koma mér í vinnuna :)
Adios
Halla caught a star @ 13:09
|
|