sunnudagur, apríl 22, 2007
Djamm aldarinnar!!!!!!!! Vá hvað það var rugl gaman að dimmitera! Hef ekki skemmt mér svona vel lengi! :D
Dagurinn byrjaði snemma...og þá meina ég snemma! Þegar ég vaknaði voru engin venjuleg föt sem biðu mín...ónei! Ég skellti mér í beljubúning og málaði mig í stíl við það. Fór svo framm, burstaði tennurnar uppúr bjór, notaði tópaz sem munnskol, setti vodka útá cheeriosið og skolaði því niður með rótsterkum kokteil! Mæting í morgunpartýið var kl 6! Ég er samt svo töff á því að ég mætti ekki fyrr en rúmlega 7 ;) Fólk var orðið veeeel drukkið og stemmarinn var æðislegur :) Úr partýinu tókum við rútu niður í skóla og gerðum okkur að algjörum fíflum! Fórum í leiki með kennurunum og frumsýndum dimmiteringarmyndbandið okkar (sem var btw tær snilld)... Eftir hádegismatinn með kennurunum tókum við strætó uppí keiluhöll og vorum þar í dágóða stund... drykkjan var farin að segja til sín og fólk í misgóðu ástandi...nefni engin nöfn :p Fjölbraut í Garðabæ voru að líka að dimmitera og þau voru einnig uppí keiluihöll! Þau voru í bleikum svínabúningum, þannig að gin og klaufaveikin var mætt á staðinn...eða amk gin...humm.. Síðan var leiðinni haldið niðrí bæ þar sem húllumhæið hélt áfram...snú snú og hlaup'í'skarðið var eitt af fáu sem við gerðum.... Um fjögur leitið fór ég heim og reyndi að hafa mig til fyrir kvöldmatinn með kennurunum! Það var hægara sagt en gert því ástandið á manni eftir 10 tíma drykkju var ekki svo æðislegt... en mér tókst með einhverjum hætti að þvo beljuna af mér og skella Höllunni upp :) Eftir geggjaða kvöldstund á Lækjarbrekku fór hópurinn á Sólon þar sem við vorum með efri hæðina útaf fyrir okkur. Þar var dansað svo mikið að fólk fór haltrandi út... Stuðið dugði langt frammá nótt og eftir 24 tíma drykkju var maður búinn á því og það var best í heimi að leggjast uppí rúm... ég ætla ekki að tjá mig um ástandið sem ég var í þarna undir lokin...en áfengismælirinn sýndi ekkert nema HOT-WARNING-HOT....hehehe...úbbs :) - Ragnar getur líka sagt ykkur frá því..hann fékk heiðurinn á því að sækja mig í bæinn... Takk Ragnar...love ya :*
Allavegana...hér eru nokkrar myndir af deginum, og fleiri eru í myndaalbúminu mínu :)
*Hrefna beljumamma og Halla skalla* *Mjólka fyrir ungana sína* *Svaka stuð í keilunni* *Janus, ég og Viktoría* Svo nokkrar myndir frá kvölverðinum ;) *Elva, ég, Margrét og smá af Daða* *Sætastar* *hehe...svo fullar að við náum ekki að fókusa!!*
Halla caught a star @ 12:04
fimmtudagur, apríl 12, 2007
Hvað er málið með það að kellingar leita alltaf í sama gamla farið? Ef einhvað er ekki að virka fyrir þær, þá eiga þær að breyta til og rífa sig frá því sem er ekki að gera sig fyrir þær!! Eins og t.d. með "sambönd"...er ekki endilega að tala um ástarsambönd (gæti verið foreldrar, vinir eða annað)... AFHVERJU geta kellingar ekki slitið sig frá köllum sem hafa slæm áhrif? Og ég er alls ekki að tala um líkamlegt ofbeldi, heldur meira andlegt.... Ég veit um eina sem er í þvílíkt sorglegu andlegu sambandi við einn náunga, og hann er SVO vondur við hana að ég á ekki til orð! En SAMT heldur hún áfram að gera ALLT fyrir hann!!! VÁ hvað svona getur gert mig PIRRAÐA!!! Samt kemur þetta mér í rauninni ekkert þannig við...bara sárt að horfa á þetta og geta ekkert gert... ALLAVEGANA....Dimmitering eftir VIKU!!!! Sheizzzzzze!! Hver man eftir því megar að maður horfði á þennan í hverri viku, spóka sig um í speedo????!! Djí hvað hann er EKKI að gera sig...hahahah Hehe ég verð að segja ykkur eitt.... ÉG ER AFTUR KOMIN MEÐ *%!#$%!#$$& KVEF!!!!!!!!!!!! Trúið þið því?????? Nei, hélt ekki! Það nefninlega á ekki að vera fræðilega HÆGT að fá kvef svona oft!!!!!!! Öss...pirruuuuð :) Damn, ég ætlaði sko að segja ykkur e-ð hell merkilegt! Ok, segi ykkur það bara seinna :) La8ter
Halla caught a star @ 22:07
mánudagur, apríl 09, 2007
Gleðilega páska litlu páskaungarnir mínir :) Vona að þið hafið haft það betur en ég um páskana!!! Ekki það að ég hafi haft það e-ð slæmt..nei-nei...ég er bara búin að vera VEIK....AFTUR!!!! Það er frekar stutt síðan ég var veik síðast! Eða mér finnst það amk! Miðað við það að ég er ekki oft veik!.. ohh..pirrípú :( En já, það þýðir ekkert að vera að hugsa um það núna! Í rauninni get ég ekki hugsað um það núna því það kemst ekkert annað inní hausinn á mér nema stress-hugsanir fyrir prófin!! Úff hvað það er stutt í þetta!! OMG!!! Ég er að fara að dimmitera í NÆSTU VIKU!!!! Fúkk mí hvað tíminn er fljótur að líða!!! Don´t worry, ég tek helling af myndum á dimmiteringunni :) Heheh verð svo big time að gera mig að fífli, but what the heck ;) Smá afmæliskveðjur til þeirra sem eru búnir að eiga afmæli á síðustu dögum... Til hamingju með afmælið: Magga, Dóra, Hulda og Simmi (og Ragnar á morgun) :D Love u all :) Verð að þjóta....að læra meira...ég get svo svarið fyrir það, ég á eftir að lesa yfir mig og verða að heilaleysingja!! P.S. Vita ekki örugglega allir hvaðan páskaeggin koma?????
Halla caught a star @ 13:09
|
|